Aðsend grein úr Morgunblaðinu.
Loftslagsráðstefnunni COP30 í Belém, miðstöð menningar og viðskipta við ósa Amazon í Brasilíu, er nú lokið. Aðgerðasinnar eru á heimleið eftir tvær vikur af myndatökum í regnskóginum, mótmælum sem settu dagskrá úr skorðum og ástríðufullum ræðum um að snarminnka losun koltvísýrings. En þátttakendur forðuðust að horfast í augu við hinn blákalda veruleika: Aðgerðir vestrænna ríkja skipta sífellt minna máli fyrir þróun hnattrænnar hlýnunar.